Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Þann 1. júlí 2005 er hefðbundinni prentun Lögbirtingablaðs hætt og réttaráhrif auglýsinga í blaðinu bundin við hina rafrænu útgáfu á netinu, sbr. lög nr. 15/2005.

Frá sama tíma breytist móttaka auglýsinga í blaðið.

Nýju ferli er lýst á eftirfarandi hátt:

  1. Auglýsanda er úthlutað aðgangsorði að eigin svæði í kerfi Lögbirtingablaðs. Hann færir sjálfur inn auglýsingar og ákveður birtingardag.
  2. Starfsfólk Lögbirtingablaðs samþykkir auglýsinguna eða hafnar henni.
  3. Þegar auglýsing er samþykkt myndast krafa sem birtast mun í netbanka auglýsandans eða berast honum í pósti.
  4. Þegar auglýsing er greidd berast upplýsingar um það til Lögbirtingablaðs og vinnsla auglýsingar heldur áfram.
  5. Auglýsing birtist á vef Lögbirtingablaðs og gerir réttaráhrif hennar virk. Auglýsingu verður ekki breytt eftir birtingu.

Á vef auglýsanda hafa verið settar inn flýtileiðir fyrir nokkrar tegundir auglýsinga, sem eru að mestu með stöðluðum textum. Þar má t.d. nefna nauðungarsölur, innkallanir, skiptafundi, skiptalok og firmaskrá. Auglýsing sem ekki fellur að stöðluðum texta, er skráð sem almenn auglýsing.

Aukakostnaður fellur á auglýsingar sem sendar eru inn með öðrum hætti vegna aukinnar vinnu starfsmanna.

Samkvæmt úrskurði ríkisskattstjóra eru auglýsingar í Lögbirtingablaði ekki virðisaukaskattsskyldar.

Til að öðlast aðgang að auglýsandakerfi Lögbirtingablaðsins þarf umsækjandi að ná í umsóknina hér að neðan, prenta og fylla út og koma til skrifstofu Lögbirtingablaðsins, Ránarbraut 1, 870 Vík. Við móttöku og staðfestingu verður ábyrgðarbréf með notendanafni og lykilorði sent umsækjanda.

Umsókn um aðgang að auglýsandakerfi Lögbirtingablaðsins.



Reykjavík, 23. júní 2005
Lögbirtingablað