1. gr.
Samkvæmt 3. mgr. 6. gr. laga um Stjórnartíðindi og
Lögbirtingablað, nr. 15 10. mars 2005, eru gjöld fyrir auglýsingar sem birtast
í Lögbirtingablaði hér með ákveðin þannig:
1. Fyrir auglýsingar í eftirtöldum flokkum sem sendar eru inn í
gegnum almennt auglýsingaform í auglýsingakerfi Lögbirtingablaðsins greiðast 2
kr. fyrir stafabil, hvert slag:
Áskorun
Auglýsing/tilkynning frá ráðuneyti
Auglýsing/tilkynning varðandi fjármálastarfsemi
Dómsbirting
Embætti, sýslanir, leyfi o.fl.
Fasteigna-, fyrirtækja- og skipasala
Félagsslit
Framhald uppboðs
Fyrirkall
Greiðsluáskorun
Happdrætti
Húsbréf
Innkallanir (aðrar en þrotabúa og dánarbúa)
Kaupmáli
Laus störf, stöður, embætti o.fl.
Mat á umhverfisáhrifum
Nauðasamningar
Skipulagsauglýsing
Starfsleyfi
Stefna
Svipting fjárræðis
Umferðarauglýsingar
Vátryggingafélagaskrá / vátryggingamiðlaraskrá
Veðhafafundur
Ýmsar auglýsingar og tilkynningar
2. Fyrir eftirtaldar auglýsingar greiðist sem hér segir:
Aukatilkynning hlutafélagaskrár
|
1.000 kr. fyrir hverja tilkynningu
|
Búfjármarkaskráning
|
500 kr. fyrir auglýsingu
|
Firmaskráning
|
1.000 kr. fyrir auglýsingu
|
Hlutafélagaskráning
|
1.000 kr. fyrir auglýsingu
|
Innköllun dánarbús
|
1.000 kr. fyrir hvert bú
|
Innköllun þrotabús
|
1.000 kr. fyrir hvert bú
|
Nauðungarsala
|
1.000 kr. fyrir hverja eign
|
Skiptafundur dánarbús
|
1.000 kr. fyrir auglýsingu
|
Skiptafundur þrotabús
|
1.000 kr. fyrir auglýsingu
|
Skiptalok dánarbús
|
1.000 kr. fyrir auglýsingu
|
Skiptalok þrotabús
|
1.000 kr. fyrir auglýsingu
|
3. Annað:
Undanþegin gjaldskyldu eru skiptalok í búum þar sem innkallanir
hafa verið birtar fyrir 1. júlí 2005.
Einungis er greitt fyrir 1. birtingu auglýsinga sem skylt er skv. lögum að
birta oftar.
Heimilt er að innheimta allt að tvöfalt verð auglýsingar vegna vinnu við
innslátt eða uppsetningu.
Heimilt er að innheimta álag þótt auglýsing hafi verið afturkölluð.
Gjald vegna fylgiskjals sem birtist með auglýsingu er kr. 5.000.
2. gr.
Samkvæmt 2. mgr. 7. gr. laga um Stjórnartíðindi og
Lögbirtingablað, nr. 15 10. mars 2005, er gjald fyrir áskrift að
Lögbirtingablaði sem hér segir:
1. Áskrift að
prentaðri útgáfu Lögbirtingablaðs er kr. 55.000 fyrir árið.
2. Verð einstakra blaða er kr. 550.
3. gr.
Gjaldskrá þessi, sem kemur í stað gjaldskrár nr. 690 frá 18.
júlí 2005, öðlast þegar gildi.
Dóms- og kirkjumálaráðuneytinu, 29. júní 2007.
Björn Bjarnason.
Ragna Árnadóttir.
|