Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Áskriftarskilmálar netúgáfu Lögbirtingablaðs

Skilmálar fyrir áskrift að netúgáfu Lögbirtingablaðs eru eftirfarandi:

Ekki er leyfilegt að afrita efni Lögbirtingablaðs til dreifingar eða til að safna saman upplýsingum um einstaka aðila, einstaklinga eða lögaðila.

Áskrift að rafrænni útgáfu Lögbirtingablaðsins er gjaldfrjáls fram til 1. janúar 2006.

Áskriftarskilmálar prentaðrar útgáfu Lögbirtingablaðs

Skilmálar fyrir áskrift að prentaðri útgáfu Lögbirtingablaðs eru eftirfarandi:

Áskrifandi pantar áskrift með símtali til skrifstofu Lögbirtingablaðs eða sendir tölvupóst á netfangið logbirtingabladid@tmd.is, eða sendir fax í númerið 488 4301. Prentuð útgáfa Lögbirtingablaðs verður þá send viðkomandi.

Áskriftargjald að prentaðri útgáfu Lögbirtingablaðs er kr. 55.000 á ári sem greiðist fyrirfram.

Ath. netútgáfa Lögbirtingablaðs er hin lögformlega útgáfa en prentaða útgáfan er yfirlit yfir það sem gefið hefur verið út, geta því réttaráhrif auglýsinga verið liðin þegar prentaða útgáfan berst áskrifanda.